Jólatónleikarnir Jólin heima fara fram í Miðgarði í Skagafirði laugardagskvöldið 14. desember 2024.
Þetta er í fimmta skiptið sem ungt tónlistarfólk af Norðurlandi vestra tekur sig saman og slær upp jólatónleikum í fremstu röð.
Aðeins eitt miðaverð er á tónleikana, kr. 7.990.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, KS, Tengli og FISK.
Tónleikarnir munu hefjast kl. 21 og húsið opnar kl. 20.
AUKATÓNLEIKAR: Uppselt er á kvöldtónleikana, aukatónleikar komnir í sölu. Húsið mun opna kl. 16 og aukatónleikar hefjast kl. 17.
ATH. Á Aukatónleikum verður dagskrá sú nákvæmlega sama og verð er það sama og á kvöldtónleika.