Steinaleitin

Ratleikur

Velkomin/nn í steinaleitina!
Til að taka þátt þarf að sækja þátttökublað í hvíta húsið (Strandveg 50), á því blaði eru myndir af 10 máluðum steinum sem komið hefur verið fyrir á mismunandi stöðum í miðbænum.
Markmið leiksins er að finna alla steinana og skrifa nákvæma staðsetningu við hverja mynd. Blaðinu er síðan hægt að skila aftur útfylltu í hvíta húsið á opnunartíma húsins yfir goslokahelgina.
Það þarf að skila blaðinu fyrir lokun á Sunnudeginum svo þátttakan gildi.
Drengnir verða út 10 vinningshafar.
Góða skemmtun!!

Opnunartímar hvíta húsins (Strandvegur 50):

Föstudagur- 13:00 - 16:00
Laugadagur- 13:00 - 16:00
Sunnudagur- 13:00 - 16:00