Goslokahátíð fer fram 3. - 7. júlí 2024. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir og sýningar, auk tónleika af ýmsu tagi - bæði innandyra og utan.
Barnadagskrá verður fjölbreytt og má þar nefna Goslokahlaup, Latabæ, Sirkus Ananas, Jón Arnór og Dr. Gunna í boði Ísfélags og sundlaugarpartý með Væb. Auk þess verða leikir og fjör í miðbænum í boði og/eða með þáttöku fyrirtækja og félagasamtaka.
Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að gera bæjarbrag hátíðarinnar sem mestan og sem lið í því átaki vill nefndin hvetja alla bæjarbúa og fyrirtæki til þess að skreyta umhverfi sitt í goslokalitunum. Goslokafánar og veifur eru til sölu í Sagnheimum og á Bókasafni Vestmannaeyja.
Goslokanefnd áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ef þörf þykir og verða þær breytingar þá kynntar sérstaklega á facebook síðu hátíðarinnar,
Goslokahátíð Vestmannaeyja
Einnig bendum við á að útivistarreglur eru í gildi þrátt fyrir Goslokahátíð og að börn eru ætíð á ábyrgð foreldra sinna. Við viljum þakka öllum þeim sem koma að viðburðahaldi kærlega fyrir samstarfið og minnum á að hátíð sem þessi væri ekkert án aðstoðar einstaklinga og fyrirtækja.
Góða skemmtun og gleðilega hátíð,
Goslokanefnd Vestmannaeyja