Til hamingju, þú ert að eignast Ísfirðing
Við erum stödd á Engjaveginum kvöldið fyrir minningarathöfn Þorláks Skúlasonar. Börnin hans tvö, Kristín og Marteinn eru ósamstíga í undirbúningnum sem ekki sér fyrir endann á. Nýr kærasti, gamall kærasti, gamla vinkonan og nágrannar koma við sögu, en ekki er mikið gagn í þeim öllum.
Glænýr farsi eftir Dagbjörtu Ósk Jóhannsdóttur verður sýndur í Edinborgarhúsinu dagna 10.-13. ágúst.
Farsinn er í uppfærslu Ísleikhússins og styrkt af menningarsjóði Ísafjarðarbæjar