Image

Goslokahátíð fer fram 2. - 5. júlí 2026. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir og sýningar, auk tónleika af ýmsu tagi - bæði innandyra og utan.

Barnadagskrá verður fjölbreytt og má þar nefna Goslokahlaup, Jón Jónsson, Sólon og Dimma dúskur og BMX brós í boði Ísfélagsins og sundlaugarpartý með SZK. Auk þess verða leikir og fjör í miðbænum í boði og/eða með þáttöku fyrirtækja og félagasamtaka.

Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að gera bæjarbrag hátíðarinnar sem mestan og sem lið í því átaki vill nefndin hvetja alla bæjarbúa og fyrirtæki til þess að skreyta umhverfi sitt í goslokalitunum. Goslokafánar og veifur eru til sölu í Sagnheimum og á Bókasafni Vestmannaeyja.

Goslokanefnd áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ef þörf þykir og verða þær breytingar þá kynntar sérstaklega á facebook síðu hátíðarinnar,
Goslokahátíð Vestmannaeyja

Einnig bendum við á að útivistarreglur eru í gildi þrátt fyrir Goslokahátíð og að börn eru ætíð á ábyrgð foreldra sinna. Við viljum þakka öllum þeim sem koma að viðburðahaldi kærlega fyrir samstarfið og minnum á að hátíð sem þessi væri ekkert án aðstoðar einstaklinga og fyrirtækja.

Góða skemmtun og gleðilega hátíð,
Goslokanefnd Vestmannaeyja

goslok@vestmannaeyjar.is