Tónleikarnir Heima á Króknum fara fram þriðjudagskvöldið 30. apríl. Um er að ræða 14 stutta tónleika sem fara fram á sjö heimahúsum og á öðrum óvenjulegum tónleikastöðum á Sauðárkróki á einu kvöldi.
Þeir fyrstu hefjast kl. 20 og þeim síðustu lýkur kl. 23. Nánari tímasetningar og staðsetningar verða kynntar síðar.
Aðgöngumiði gildir á alla tónleika kvöldsins.
Fram koma:
Jónas Sigurðsson með Adda og Guðna
Magni Ásgeirsson
Fúsi Ben og Vordísin
Geirmundur Valtýsson
Malen Áskelsdóttir
Sigvaldi Helgi

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra

Image
Powered by Glaze