Image

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði dagana 22. - 25. maí 2026.

Hvítasunnan nálgast og þá er boðið til heimildamyndaveislu á Patreksfirði! Gæðastundir í Skjaldborgarbíói, skrúðganga, plokkfiskveisla, bingó,limbókeppni og vornóttin á Patreksfirði móta lykilviðburð fyrir heimildamyndahöfunda og áhugafólk um heimildamyndir á Íslandi.

Skjaldborg er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í Skjaldborgbíói sem staðsett er í hjarta bæjarins.

Dagskrá má finna hér: https://skjaldborg.is

Dagskráin verður fjölbreytt og auk heimildamyndaveislu verða kynnt verk í vinnslu, Kvikmyndasafn Íslands sýnir verk úr safnkosti sínum, heiðursgestir verða Norðurheimskautsraddir frá Grænlandi, Færeyjum og Sámi og innsetningin Midnight Angel mun heilla gesti. Fulltrúar frá CPH:DOX og Nordisk Panorama kynna branshluta hátíðanna og umsóknaferli þar að lútandi.

Lokaball Skjaldborgar fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar að lokinni skrúðgöngu, verðlaunaafhendingu, kóngadansi og limbódanskeppni um hvítasunnu eins og hefð er fyrir en draumapoppsveitin Lottó slær lokatóninn á hátíðinni með balli sunnudagskvöldið 24.maí með dansvænum lögum sem snúast um dagdrauma, töfra og langar nætur á næturlífinu.

Hátíðarpassi veitir aðgang að

  • allri dagskrá hátíðarinnar
  • sjávarréttaveislu á sunnudagskvöldinu (kostar sér 4000kr)
  • plokkfiskboði kvenfélagsins á laugardagskvöldinu (kostar sér 3500kr)
  • partýi og bingói á laugardagskvöldinu (aðeins fyrir handhafa passa)
  • lokaballi, verðlaunaafhendingu og limbókeppni hátíðarinnar (kostar sér 3500 kr)
  • sundlauginni alla helgina (hver miði 1326kr)
  • tjaldstæðinu alla helgina (kostar 4039kr fyrir 3 nætur)

Þessu vill engin missa af!

Powered by Glaze