Goslokahátíð fer fram 1. - 6. júlí 2025. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir og sýningar, auk tónleika af ýmsu tagi - bæði innandyra og utan.
Barnadagskrá verður fjölbreytt og má þar nefna Goslokahlaup, Benedikt búálfur og Dídí mannabarn, VÆB, Íþróttaálfurinn, brekkusöngur fyrir börnin með Andra Eyvindar í boði Ísfélags og sundlaugarpartý með Siggu Ózk. Auk þess verða leikir og fjör í miðbænum í boði og/eða með þáttöku fyrirtækja og félagasamtaka.
Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að gera bæjarbrag hátíðarinnar sem mestan og sem lið í því átaki vill nefndin hvetja alla bæjarbúa og fyrirtæki til þess að skreyta umhverfi sitt í goslokalitunum. Goslokafánar og veifur eru til sölu í Sagnheimum og á Bókasafni Vestmannaeyja.
Goslokanefnd áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ef þörf þykir og verða þær breytingar þá kynntar sérstaklega á facebook síðu hátíðarinnar,
Goslokahátíð Vestmannaeyja
Einnig bendum við á að útivistarreglur eru í gildi þrátt fyrir Goslokahátíð og að börn eru ætíð á ábyrgð foreldra sinna. Við viljum þakka öllum þeim sem koma að viðburðahaldi kærlega fyrir samstarfið og minnum á að hátíð sem þessi væri ekkert án aðstoðar einstaklinga og fyrirtækja.
Góða skemmtun og gleðilega hátíð,
Goslokanefnd Vestmannaeyja